Dagskrá fundar
1. Fitjar 2 (2026010220)
Samþykkt
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
2. Réttarvegur (2026010087)
Hafnað
Skv. grein 2.3.1. í byggingarreglugerð fellur erindi ekki undir skilgreiningu um umsókn um stöðuleyfi.
Þar sem um tengingu við skolplagnir Reykjanesbæjar er að ræða er erindið byggingarleyfisskylt, skila þarf inn byggingarleyfisumsókn.
Umsókn um stöðuleyfi hafnað.
3. Fuglavík 43 (2026010044)
Erindi frestað. Leitað verður eftir umsögnum eldvarnar- og vinnueftirlits.
Embætti byggingarfulltrúa bendir auk þess á að skv. grein 2.3.6. í byggingarreglugerð fellur tjaldhýsi undir tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi.
4. Kirkjuvegur 37 (2025120346)
Grenndarkynning útrunnin. Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.
5. Fitjar 2 (2025120240)
Samþykkt
Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.
6. Hafnargata 81-85 (2025110433)
Samþykkt
Embætti byggingarfulltrúa bendir á að stöðuleyfi eru veitt til eins árs í senn.
Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 13. janúar 2027.
7. Hafnarbakki 10 (2021050189)
Þar sem um fjölgun íbúða er að ræða vísar byggingarfulltrúi umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu. Einnig er gerð krafa um algilda hönnun.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:08.