Beint í efni

375. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar - aukafundur

Fundurinn var haldinn þann 3. nóvember 2025 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Eysteinn Eyjólfsson aðalmaður, Guðbergur Ingólfur Reynisson aðalmaður, Gunnar Felix Rúnarsson aðalmaður, Helga María Finnbjörnsdóttir- aðalmaður, Róbert Jóhann Guðmundsson formaður nefndar

Að auki sátu fundinn Gunnar Kr. Þ. Ottósson skipulagsfulltrúi sem einnig ritaði fundargerð, María Kjartansdóttir verkefnastjóri skipulagsmála, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.

Dagskrá fundar

1. Fitjabraut og Fitjabakki - gangandi og hjólandi umferð (2025090263)

Tillögur að öruggum gönguleiðum um svæðið verða lagðar fram á fyrsta fundi í desember.

2. Umsagnarmál frá nefndasviði Alþingis (2025030101)

Tillaga til þingsályktunar um hjólaleið milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja, 87. mál.

Bæjarráð óskar eftir að umhverfis- og skipulagsráð sendi umsögn um málið til nefndasviðs Alþingis.

Reykjanesbær fagnar tillögu um gerð fýsilegrar hjólaleiðar milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja. Tillagan er í samræmi við stefnu sveitarfélagsins um vistvænar og öruggar samgöngur og styður við markmið svæðisskipulags um aukna tengingu milli helstu byggðarkjarna Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Reykjanesbær lýsir yfir stuðningi við tillöguna og hvetur innviðaráðherra til að skipa starfshópinn sem taki mið af svæðisskipulagi Suðurnesja og góðu samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu. Mikilvægt er að fulltrúar Reykjanesbæjar taki þátt í vinnu starfshópsins og munu þeir leggja til gögn, reynslu og sjónarmið íbúa svæðisins.

Með því að smella hér má skoða þingsályktunartillöguna á vef Alþingis

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:30.