Beint í efni

Aðventugarðurinn

Jólastemning í Aðventugarðinum

Aðventugarðurinn í Reykjanesbæ verður opinn þrjár helgar í desember, laugardaga kl. 15–18 og sunnudaga kl. 13–16, auk Þorláksmessu.

Í Aðventugarðinum geta íbúar og gestir átt saman notalegar stundir í aðdraganda jóla, notið jólaljósanna og stemningarinnar, yljað sér við eldstæðin og gætt sér á heitu kakói og sykurpúðum. Fjölbreyttir sölukofar og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna setja svo svip sinn á garðinn.

Það er tilvalið að bregða sér í bæjarrölt, koma við í Aðventugarðinum og njóta um leið þeirrar verslunar og þjónustu sem í boði er í miðbænum.

  • Fólk á skautasvelli í Reykjanesbæ

Vertu með okkur í Aðventugarðinum 2026
Undirbúningur fyrir Aðventugarðinn í Reykjanesbæ er hafinn og nú leitum við að fjölbreyttum söluaðilum, skapandi fólki og skemmtilegum dagskráratriðum til að skapa með okkur notalega og lifandi jólastemningu í garðinum á aðventunni. Aðventugarðurinn verður opinn allar helgar í desember, frá kl. 15-18 laugardaga og 13-16 sunnudaga. Á laugardögum njótum við þess þegar rökkrið færist yfir og jólaljósin taka við en leggjum áherslu á fjölskyldur og yngri gesti á sunnudögum.

Hér fyrir neðan getur þú sótt um sölupláss og um að standa fyrir atriðum í Aðventugarðinum.

Spurt og svarað

Aðventugarðurinn - Reykjanesbær